16febrúar

MYNDIR ERU ÞÚSUND ORÐA VIRÐI

HÉR ERU MYNDIR AF GLÆNÝJU DÓTTUR MINNI HENNI BIRGITTU LÍF KARLSDÓTTUR.
ER HÚN EKKI FALLEGUST??







ÞARF ÉG AÐ SEGJA EITTHVAÐ MEIRA??
KV. BIG DADDY
16. febrúar 2007 klukkan 13:12
Karl Viggósson
14 athugasemdir
10febrúar

ÚFF PÚFF OG SNÚFF LÚFF!!

JÆJA ÉG VAR BÚINN AÐ SKRIFA GEÐVEIKT LANGA FÆRSLU EN HÚN DATT ÚT. ÞETTA BLOGG SÍÐU DRASL ER ÓGEÐSLEGA PIRRANDI.
JÆJA ÞÁ REYNUM VIÐ AFTUR.
HÉRNA HEFUR ÝMISLEGT GENGIÐ Á OG ÆTLA ÉG AÐ REYNA AÐ TJÁ MIG HÉR UM ÞAÐ.
ÉG ER BÚINN AÐ VERA VEIKUR MEIRA OG MINNA Í VIKU OG TOPPAÐI Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ MEÐ 40 STIGA HITA.
ÉG LÉT AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI MITT EFTIR LIGGJA HELDUR SMITAÐI KONUNA MÍNA SEM ÁTTI NÚ NÓGU BÁGT FYRIR.
VIÐ ERUM SEMSAGT BARA BÚINN AÐ LIGGJA UNDIR SÆNG OG HÓSTA TIL SKIPTIS OG MÆLA OKKUR TIL SKIPTIS SÍÐUSTU DAGA.
ALVEG ER ÞAÐ TÝPÍSKT AÐ ÞEGAR ÉG ER VEIKUR ÞÁ ER GEÐVEIKT GOTT VEÐUR ÚTI, HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ??
DAGNÝ SKELLTI SÉR NÚ SAMT Í MÆÐRASKOÐUN Á FIMMTUDAGINN OG BARNIÐ ER BÚIÐ AÐ SKORÐA SIG SEM ÞÝÐIR AÐ NÚ STYTTIST VERULEGA Í DÖMUNA.


ANNAÐ SEM ÉG VILDI RÆÐA ER ÞÁTTUR NOKKUR SEM ER Í GANGI Á STÖÐ 2 OG NEFNIST X-FACTOR. ÞARNA ER ÞÁTTUR Á FERÐ ÞAR SEM FÓLK SEM KANN EKKERT MIKIÐ AÐ SYNGJA KEPPIR EINMITT Í SÖNG. ÞAÐ ERU ÞÓ EKKI KEPPENDURNIR SEM ÉG VILDI RÆÐA HELDUR STARFSFÓLKIÐ.

VIÐ SKULUM BARA BYRJA Á HENNI HÖLLU VILHJÁLMSDÓTTUR EN HÚN ER EINMITT KYNNIR ÞÁTTARINS. HALLA ER SÆT OG SKEMMTILEG STELPA SEM Á FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR Á SVIÐI SEM LEIKARI, DANSARI EÐA JAFNVEL SÖNGVARI EN ALLS EKKI SEM KYNNIR EÐA ÞÁTTASTJÓRNANDI. ÞETTA ER ALLT SVO MISHEPPNAÐ HJÁ GREYIÐ STELPUNNI AÐ ÞAÐ ER HÁLF GRÁTLEGT. BRANDARARNIR HENNAR ERU SVO SLAPPIR AÐ EYÞÓRI SVÍÐUR Í LIPPUNA SÍNA (einkahúmor) OG SVO ER ÞETTA ALLT SVO ÞVINGAÐ OG ASNALEGT EITTHVAÐ.
EN HALLA ER SKUTLA SVO ÉG SKAL EKKI BÖGGA HANA MEIRA.

HALLA
SNÚUM OKKUR FREKAR AÐ PÁLI ÓSKARI "BJÚGNAKRÆKI" HJÁLMTÝRSSYNI.
ÉG VEIT EKKI HVORT HANN ER ÞARNA TIL ÞESS AÐ FINNA GÓÐA SÖNGVARA EÐA EINFALDLEGA TIL ÞESS AÐ SEGJA ÖLLUM KEPPENDUM AÐ ÞEIR SÉU MEÐ ÞENNANN X-FACTOR OG SÉU AND I QUOTE "BORN TO DO IT" ÞETTA SEGIR HANN VIÐ ALLA KEPPENDUR? EF SVO ER AÐ ALLIR KEPPENDUR ERU MEÐ ÞENNANN X-FACTOR OG ALLIR ERU ÞEIR BORN TO DO IT, ÚT Á HVAÐ GENGUR KEPPNIN ÞÁ??
SÍÐAN ER ÞAÐ ÞRIÐJI MÖGULEIKINN OG HANN ER SÁ AÐ HANN SÉ ÞARNA TIL ÞESS EINS AÐ SEGJA ÓVIÐEIGANDI HOMMA OG SVERTINGJA BRANDARA Í BEINNI ÚTSENDINGU.
BARNDARA EINS OG "FROM NOW ON I TAKE MY COFFEE BLACK" OG "ONCE YOU GO BLACK, YOU NEVER GO BACK" ÞETTA SEGIR HANN VIÐ EINN KEPPANDANN SEM HEITIR ALAN OG ER SVERTINGI. EN ÞAÐ ER HEILA MÁLIÐ. ALAN ER EKKI BARA SVERTINGI HELDUR ER HANN FAÐIR OG EIGINMAÐUR EÐA KÆRASTI, ER EKKI ALVEG VISS HVORT ÞAU ERU GIFT EN ÉG EFAST EKKI UM AÐ FJÖLSKYLDAN HANS HORFIR Á ALLA ÞÆTTINA HVORT SEM ÞAÐ ER Í SJÓNVARPINU EÐA SALNUM. MÉR MYNDI EKKI FINNAST GAMAN EF OLGA FÆRSETH VÆRI AÐ KLÆMAST EITTHVAÐ Í DAGNÝJU Í BEINNI ÚTSENDINGU ÖLL FÖSTUDAGSKVÖLD, ÆTLI ÞEIM SÉ SAMA??
skilaboð til Palla: opnaðu augun og hugsaðu hvað þú segir áður en þú opnar á þér typpalúguna.

PALLI
JÆJA NÚ JÆJA.
ÞÁ ER KOMIÐ AF ELLÝ A.K.A ELLÝ Í Q4U.
HVERNIG Í ANDSKOTANUM VANN ÞESSI ÚTBRUNNA, SOÐNA KRUKKA SÉR INN RÉTT TIL ÞESS AÐ GAGNRÝNA FÓLK FYRIR SÖNG? HÚN KANN EKKI AÐ SYNGJA FREKAR EN ÉG OG ER BARA ÞEKKT FYRIR ÞAÐ AÐ VERA Í RUGLI OG VITLEYSU EN EKKI FYRIR GÓÐANN SÖNG NÉ NOKKRA HÆFILEIKA Á ÞVÍ SVIÐI. HEF LÍKA HEYRT AÐ HÚN HAFI VERIÐ SVAKALEG DRUSLA Á SÍNUM TÍMA. SEL ÞAÐ EKKI DÝRARA EN ÉG KEYPTI ÞAÐ. JA OG ÞÓ!!
HVAÐ ER LÍKA MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ AÐ YNGSTU OG ÓREYNDUSTU KEPPENDURNIR FÁ HANA SEM ÞJÁLFARA? HÚN VEIT EKKERT Í SINN KOLL UM ÞETTA OG ÞAÐ ENDURSPEGLAR SIG Í FRAMMISTÖÐU KEPPENDANNA HENNAR.
ELLÝ
JÆJA ÞAÐ ER BEST ÉG STOPPI HÉR OG SKELLI MÉR Í STURTU, ÉG VERÐ SKÍTUGUR AF ÞVÍ AÐ HUGSA OF MIKIÐ UM ÞETTA.
SEGIÐI MÉR NÚ HVAÐ YKKUR FINNST MEÐ KOMMENTUM OG SVO MÁ FÓLK LÍKA KVITTA Í GESTABÓKINA SVONA ENDRUM OG EINS ÞVÍ HÚN MASSÝ BABE GERÐI ÞAÐ SÍÐAST Í JÚNÍ EÐA EITTHVAÐ.

CARLITO

10. febrúar 2007 klukkan 17:26
Karl Viggósson
3 athugasemdir
29janúar

Espania

Þetta eru myndir af rétta húsinu á spáni.
The giant pool again
Útibarinn
Stoafan
Bedroom
Risastóra einka sundlaugin
Another bedroom
Eldhús
mmmmmmm!!
Ekki slæmt að vera að fara að hangsa þarna í 2 vikur.

29. janúar 2007 klukkan 16:03
Karl Viggósson
1 athugasemd
27janúar

Barnaherbergið er ready.

Jæja þá er barnaherbergið tilbúið og ég set hérna nokkrar myndir inn.
P.s Takk æðislega fyrir hjálpina Dejan.




Sko er það ekki fínt. Svo set ég myndir með húsgögnum.


27. janúar 2007 klukkan 19:14
Karl Viggósson
2 athugasemdir
26janúar

Tæknin í dag...og eftir nokkur ár!!

Verð að fá að segja nokkur orð um banka í dag og tæknina sem fylgir þeim.
Þannig er mál með vexti að um daginn fengum við sendann auðkennislykil frá bönkunum og einhverju fyrirtæki sem heitir einfaldlega Auðkenni hf.
Í stuttu máli þá er þetta lítill kubbur sem maður þarf að hafa við hendina í hvert skipti sem maður þarf að komast í heimabankann sinn. Og þá þarf maður að ýta á takka á þessum lykli sem sýnir þér 7 stafa númer sem þú verður að slá inn. Þetta geriru eftir að hafa slegið inn notendanafn og lykilorðið að sjálfsögðu. Svo má nú ekki gleyma blessuðum öryggislyklinum sem þú þarft að hafa ef þér hugnast að millifæra, setja inneign á símann þinn eða vinna eitthvað þarna inni.

Mín spurning er sú að hvert stefnir þetta hjá okkur??
Er langt í það að maður þarf að hafa með sér 2 vitni í hvert skipti sem maður fer í banka eða jafnvel bara gefa lífssýni við komu til gjaldkera??
Sé samt fyrir mér eftir svona 15 ár röð í bankanum í hádeginu á föstudegi þar sem 15 manns standa og halda allir á saursýni í lítilli dollu og svo kemur að manni og maður réttir gjaldkeranum sem skellir því samstundis í smásjá og athugar hvort þetta saursýni stemmi við matarvenjur Karls Lilliendahl Viggóssonar stuðningsfulltrúa í Brúarskóla sem er með nokia 6111 farsíma með númerinu 8691885 og býr í Þórðarsveig 24 113 Reykjavík, horfði á tvo þætti í 23 seríu af lost kvöldið áður og fór í einn sokkinn öfugann í morgun eftir að hann fékk sér jógúrt og banana í morgun mat og klóraði sér í pungnum, ekki einu sinni heldur tvisvar.

Gjalkerinn endar kanski viðskiptin á því að benda þér á að þú hefðir kanski átt að sleppa því að downloda þessu dýraklámsvideoi sem þú gerðir klukkan 11 og hálfa mínútu yfir 6 í gærkvöldi!!!

Hvað segið þið, er langt í þetta??
Stefnum við ekki á fullri ferð í einhverja bölvaða vitleysu hérna eða er ég bara svona alvarlega truflaður??
26. janúar 2007 klukkan 02:14
Karl Viggósson
3 athugasemdir
23janúar

Landsliðið í handbolta rúlar og það gera sólarlönd líka.

Halló lalló!!

Var að skrifa f***ing færslu hérna og hún datt út helvítis fíflið.
Jæja það þýðir ekki að væla og það sérstaklega ekki eftir jafn magnaðann leik og í gær í HM  í handbolta þar sem Íslendingar lögðu evrópumeistara frakka 32-24 Brosandi

Þakið var að fara af Þórðarsveignum þegar ljóst var að Frakkaskrattarnir voru á leiðinni í milliriðil með 0 stig og 8 mörk í mínus. Ég er ekki frá því að hún Dagný mín væri pínu hrædd við mig en hún sagðist nú vera orðinn vön þessu.
Ég vona að hún Gyða lítla sé ekkert að flagga vegabréfinu sína þarna úti í Frakkalandi samt því Íslendingar eru pottþétt ekki vinsælasta fólkið í því landi.

Svo eru það gleðifréttirnar sem eru nú aðal ástæða þessarar færslu.
Ég, Dagný, Litla snúll, mamma, pabbi, Systir mín Vala og maðurinn hennar Fahad og hin systir mín Hildur og sonur hennar sævar, ásamt bróður mínum Orra erum að fara til Spánar í júní. nánar tiltekið 9 júní til 23 í einhverja glæsivillu með einkasundlaug og öllum pakkanum. Shit hvað ég get ekki beðið.
Erum ekki búin að ákveða hús nákvæmlega en set inn myndir af einu sem kemur til greina eða er í það minnsta sambærilegt.
Húsið séð frá sundlaugagarðinum
Bedroom
Mmmmmmmmmmmhhhhhh!!
Lalllallalallallalalalalalalalalallla. Fallarallallalllarraalllalalaflalalarlalla!!
Dúddírírúddírí!!

23. janúar 2007 klukkan 16:53
Karl Viggósson
4 athugasemdir
17janúar

Heimasíðdótaríisstuff!!

Góðann og marg blessaðann daginn góðir hálsar!

Eitthvað leiðist mér nú og kellingin í einhverju mæðra boði svo ég ákvað að reyna að skella einhverri vitleysu hérna inn. Vona að allir séu búnir að hlusta vel og lengi á Lag vikunnar með the boys því þá getur ekki verið mikið verra að lesa þvaðrið frá mér!
Mig langar nú samt að segja fólki frá einu sem ég var að kynnast og það er heimasíða sem heitir vefhýsingar.is en það er síða sem bíður uppá heimasíðugerð og hýsingu á þeim gegn mjög vægu gjaldi. Ég þekki strákinn sem er með þetta og hann er vægast sagt snillingur í þessum málum.
Í grófum dráttum þá búa þeir til heimasíðu fyrir þig með logoi og öllum pakkanum, þú velur nafn og hún endar á .net og getur geymt endalaust af myndum og myndböndum og hverju sem þér dettur í hug þarna inni, engin takmörk á því og þú borgar 10.000 kall fyrir hönnun og uppsetningu og síðan 2000 kall á mánuði fyrir hýsingu.
Þeir eru búnir að gera svona síðu fyrir vinnuna mína og ég verð að viðurkenna að það að bæta inn hlutum og skrifa færslur og svoleiðis á svona síðu er einfaldara en andskotinn og ég var ekkert smá hissa á því.
Ég er alveg handviss um að ég skelli mér á eina svona núna á næstunni og aldrei að vita nema maður fá strákana með sér í að búa til 109.net eða eitthvað álíka hallærislegt!! Hahahahahahaha!!!!
Meiri upplýsingar um þetta geti þið séð á www.vefhysingar.is.
Aloha!!
17. janúar 2007 klukkan 18:53
Karl Viggósson
Sögur
Engin athugasemd
11janúar

Verðandi faðir bloggar!

Það verður að viðurkennast að ég er ekki duglegasti bloggarinn og verð nú seint verðlaunaður fyrir það en það er nú einu sinni þannig að núna er ég hættur í blessaðri sjoppunni og ætti kanski að hafa meiri tíma til þess núna. Ætla samt ekki að lofa bót og betrun í því, enda hefur það sýnt sig að ég stend einfaldlega ekki við þau loforð. (Sjá nánast allar færslur hingað til)

Það vita það eflaust flestir sem kíkja hingað inn að ég og Dagný eigum von á lítilli stelpu í febrúar og erum nú virkilega farin að hlakka til og erum meira og minna í undirbúningi fyrir það alla daga.
Að eignast barn er stórt skref fyrir mig og kanski ekki margir sem að bjuggust við því af mér en hvað getur maður gert þegar maður er í blóma lífsins og fullur af
male jelly?

Þessir dagar hjá okkur einkennast af barnarúmi, skiptiborði, kommóðu, málningarvinnu, foreldranámskeiðum og auðvitað gríðarlegri tilhlökkun og spenningi. Ekki má þó gleyma smá hangsi eldamennsku og sjónvarpsglápi. Það er ótrúlegt hvað 37" LCD sjónvarp getur glatt mann eins og mig jafnvel þó það sé ekki kveikt á því.Ullandi

Á síðustu árum hafa margir af mínum bestu vinum og vinkonum og ættingjum verið að eignast börn og sé ég á þeim að það eru ekkert nema bestu tímar lífs míns framundan.
Það er nú líka þannig að börn hafa síðustu 5 ár meira og minna verið mitt lifibrauð og ekki sér fyrir endann á því og ekki er verra að mitt eigið barn bætist í hópinn.
(vonandi bætist það ekki í hinn hópinn bókstaflega samt)

Mig langar til að þakka foreldrum okkar frá mínum dýpstu hjartarótum því sá stuðningur sem við höfum fengið og sú eftirvænting sem ég hef séð frá foreldrum okkar beggja hefur hvort um sig verið okkur gjörsamlega ómetanlegt og erfitt að ímynda sér hvernig þetta hefði farið ef þau væru ekki hér fyrir okkur og get ég bara vonað að þetta barn verði jafn heppið með foreldra og það er nú þegar með afa og ömmur.
Hún Dagný á sko líka hrós skilið því hún hefur staðið sig eins og hetja allann þennann tíma og þetta er sko ekki auðvelt fyrir konu að ganga með barn og sennilega eitthvað sem við typpalingar munum seint eða aldrei skilja.

Læt þetta nægja í bili en aldrei að vita hvenær ég blogga aftur svo bara vera dugleg að kíkja.

Pabbalingur!!

P.s erum búin að búa til litla síðu fyrir krúttið svo kíkiði endilega á hana.
www.karlsdottir.barnaland.is
Það er samt leyninúmer en það er nafnið á litla hvíta trítilóða hundinum sem hún Dagný átti.
Ekki Tara ekki Monsa heldur _ _ _ _ _
Og svo setti ég inn nýtt lag vkunnar, ekki missa af því!!
11. janúar 2007 klukkan 18:48
Karl Viggósson
Almennt
4 athugasemdir
27júní

Loksins loksins!!

Já ætli maður prófi ekki að blogga svona til tilbreytingar.
Það eru nú komnar 2 vikur síðan ég kom frá Mallorca og tanið er byrjað að minnka javnvel þó maður sé að vinna úti þetta sumarið!!
Á Mallorca var stuð þó það hafi nú meira og minna legið í sólbaði allann tímann! Þetta er án efa uppáhaldsstaðurinn minn í heiminum og ég fer alveg aftur þangað bráðum en samt ekki alveg strax!
Kallinn að verða 22  á mánudaginn og blóm og kransar eru afþakkaðir!! Þeir sem vilja minnast mín er bent á samtök ofvirkra alkahólista!
Fyrsta helgin í júlí er líka alltaf spes en held samt að ég og Atli tökum bara í stengurnar og bjórinn á Elliðavatni!!
Síðan er HM-2006 í fullum gangi og ég skal bara segja ykkur það strax að það verða Spánn og Brasilía sem mætast í úrslita leiknum. Verslunarmannahelgin er líka að nálgast óðfluga og það verður spennandi að sjá hvert straumurinn liggur!! Huuhmmm!! Alltaf sami staðurinn, byrjar á v og endar á estmanneyjar!!
Lítið að frétta annars, er bara að vinna í heiðmörkinni allann daginn með hrúgu af börnum sem standa sig alveg prýilega og ekkert leiðinlegt að eyða sumrinu með þeim skal ég segja ykkur!!  Læt þetta nægja í bili og fariði í rassgat
!
Ullandi

27. júní 2006 klukkan 19:51
Karl Viggósson
2 athugasemdir
05júní

Mallorca Mallorca Mallorca Mallorca!!!!!!!!!!

SvalurSvalurSvalur  Thad er ekkert leidinlegt ad vera a mallorca vitandi thad ad thad er grenjandi rigning og omurlegur 10 stiga hiti heima. Svalur   thad er nefninlega 23 stiga hiti herna skilluru!!
Vard bara adeins ad nudda ykkur upp ur thessu
ADIOS!!! Svalur
05. júní 2006 klukkan 16:18
Karl Viggósson
3 athugasemdir

LAG VIKUNNAR ER

Bye Bye Love með THE BOYS!!
klassík!
www.youtube.com/watch?v=WmRsprT4Wj0

Auglýsing

Carlito info

MSN=kallinn84@hotmail.com
S:869-????

Leit

Könnun

ER ÞETTA EKKI BETRI SÍÐA EN SÚ GAMLA???